Guð

HORFÐU Á FYRIRLESTURINN

SKILABOÐ TIL ÞÍN

HLUSTAÐU Á FYRIRLESTURINN

LESEFNI

Con Dios, bls. 74-81, kaflinn heitir Guð

Við hvetjum ykkur til að vera dugleg að lesa í bókinni fyrir hvern tíma.

Lesblindir og sjónskertir eiga rétt á að nálgast Con Dios á hljóðbók á Blindrabókasafninu.

BIBLÍAN OKKAR

Nú er það saga úr Gamla testamentinu sem við ætlum að skoða og í raun fyrsta saga Biblíunnar.

SKÖPUNARSAGAN

Í upphafi skapaði Guð himin og jörð. Jörðin var þá auð og tóm. Myrkur grúfði yfir djúpinu en andi Guðs sveif yfir vötnunum.

Þá sagði Guð: „Verði ljós.“

Og það varð ljós. Guð sá að ljósið var gott og Guð greindi ljósið frá myrkrinu. Guð nefndi ljósið dag en myrkrið nótt.

Það varð kvöld og það varð morgunn, hinn fyrsti dagur.

Þá sagði Guð: „Verði festing milli vatnanna og hún greini vötn frá vötnum.“

Þá gerði Guð festinguna. Skildi hún milli vatnanna sem voru undir festingunni og vatnanna sem voru yfir festingunni. Og það varð svo.

Og Guð nefndi festinguna himin. Það varð kvöld og það varð morgunn, hinn annar dagur.

Þá sagði Guð: „Vötnin undir himninum safnist saman í einn stað og þurrlendið komi í ljós.“ Og það varð svo.

Guð nefndi þurrlendið jörð og safn vatnanna nefndi hann haf. Og Guð sá að það var gott.

Þá sagði Guð: „Jörðin láti gróður af sér spretta, sáðjurtir og aldintré af öllum tegundum jarðar sem bera ávöxt með sæði.“ Og það varð svo.

Jörðin lét gróður af sér spretta, alls kyns sáðjurtir og aldintré af öllum tegundum sem bera ávöxt með fræi.

Og Guð sá að það var gott.

Það varð kvöld og það varð morgunn, hinn þriðji dagur.

Þá sagði Guð: „Verði ljós á hvelfingu himins til þess að greina dag frá nóttu. Þau skulu vera tákn til þess að marka tíðir, daga og ár og þau skulu vera ljósgjafar á festingu himins til þess að bera jörðinni birtu.“ Og það varð svo.

Guð gerði tvö stóru ljósin, stærra ljósið til að ráða degi og minna ljósið til að ráða nóttu, og einnig stjörnurnar. Og Guð setti þau á festingu himinsins til þess að bera jörðinni birtu og ráða degi og nóttu og til að greina ljós frá myrkri. Og Guð sá að það var gott.

Það varð kvöld og það varð morgunn, hinn fjórði dagur.

Þá sagði Guð: „Vötnin verði kvik af lífverum og fuglar fljúgi yfir jörðinni undir hvelfingu himins.“

Og Guð skapaði hin stóru sjávardýr og alls kyns skepnur, sem lifa og hrærast og vötnin eru kvik af, og alla fleyga fugla eftir þeirra tegundum. Og Guð sá að það var gott.

Guð blessaði þau og sagði: „Frjóvgist og fjölgið ykkur og fyllið vötn sjávarins og fuglum fjölgi á jörðinni.“

Það varð kvöld og það varð morgunn, hinn fimmti dagur.

Þá sagði Guð: „Jörðin leiði fram lifandi skepnur, hverja eftir sinni tegund, búfé, skriðdýr og villidýr, hvert eftir sinni tegund.“ Og það varð svo.

Guð gerði villidýrin, hvert eftir sinni tegund, búfé eftir sinni tegund og hvers konar skriðdýr jarðarinnar eftir sinni tegund. Og Guð sá að það var gott.

Þá sagði Guð: „Vér viljum gera manninn eftir vorri mynd, líkan oss. Hann skal drottna yfir fiskum sjávarins, fuglum loftsins, búfénu, villidýrunum og allri jörðinni og öllum skriðdýrum sem skríða á jörðinni.“

Og Guð skapaði manninn eftir sinni mynd. Hann skapaði hann eftir Guðs mynd. Hann skapaði þau karl og konu.

Guð blessaði þau. Og Guð sagði við þau: „Verið frjósöm, fjölgið ykkur og fyllið jörðina, gerið ykkur hana undirgefna og ríkið yfir fiskum sjávarins og fuglum himinsins og öllum dýrum sem hrærast á jörðinni.“

Og Guð sagði: „Nú gef ég ykkur allar sáðjurtir jarðarinnar og öll aldintré sem bera ávöxt með fræi. Þau skulu vera ykkur til fæðu. Og öllum dýrum jarðarinnar, öllum fuglum himinsins, öllum skriðdýrum jarðarinnar, öllu sem hefur lífsanda í sér, gef ég öll grös og jurtir til fæðu.“ Og það varð svo.

Og Guð leit allt sem hann hafði gert, og sjá, það var harla gott. Og það varð kvöld og það varð morgunn, hinn sjötti dagur.

ÍGRUNDUN

  1. Veist þú að Biblían skiptist í Gamla testamentið og Nýja testamentið?
  2. Hvað hugsar þú þegar þú hugsar um Guð?
  3. Í sögunni kemur fram að Guð hafi skapað okkur í sinni mynd, hvað segir það okkur?

VERKEFNI

Upp með símana! Fyrir næsta tíma ætlum við að hugsa okkur, hvert um sig, hvaða orð það er sem sem okkur finnst lýsa Guði best og taka mynd af okkur með orðið. Prentum myndina út og búum til listaverk á einhvern tilvalin vegg í kirkjunni okkar.

BÆN KAFLANS

Almáttugi Guð, takk fyrir sköpun þína, takk fyrir náttúruna og lífið sjálft. Gefðu okkur ábyrgð og samhug til þess að fara sem allra best með sköpunarverkið þitt og varðveita það. Amen.